Jæja, ég ætla að deila með ykkur ákveðnum draum sem mig dreymdi í gær þegar ég fékk mér lúr ásamt kærustunni….

Okey þetta hófst þannig að ég var nýlagstur niður og sofnaði og vissi einhvernveginn að ég væri að dreyma og ég var í bílnum mínum og það var snjór útum allt og virtist ég vera í stórborg um nótt því ég sá stóra brú framundan og ég vissi að ég væri að dreyma þannig að ég stoppaði bílinn en áður en það skeði þá var klesst á mig og þessi kona sem var í bílnum hafði verið að flýja undan einhverju og var hún mjög illa á sig komin útaf árekstrinum og var líka ungabarn aftur í sem var ómeidd. Ég sagði ósjálfrátt við konuna að ég ætlaði að sjá um barnið og ala það upp og hljóp síðan í burtu, mér fannst nefnilega að ég yrði að hlaupa. Síðan vaknaði ég þegar litla systir kærustu minnar vakti mig.

Veit einhver hvað þessi draumur táknaði? Ég vil endilega fá svör sem fyrst því þessi draumur scared the shit out of me!