Getur einhver hjálpað mér að ráða draum?
Mig dreymdi að ég væri að fara með syni mínum að
heimsækja barnsföður minn (sem ég hef ekki hitt í rúmt ár því
hann er virkur alki!) Við þurftum að ganga yfir nokkra
sandhóla þangað til við komum að fallegri ljósri sandströnd
og sáum lítinn “bungalow” þar sem barnsfaðir minn var
(köllum hann Jón) Við fórum inn og í gegnum húsið rann tær
lækur, ég var að tala við Jón og sonur okkar var að skoða sig
um og spyrja hvað allt væri eins og hann á að sér.. Jón
sagðist vera þarna til að “hreinsa” sig, hann væri búinn að
vera edrú í 4 og hálfann mánuð og liði mjög vel, hann leit líka
mjög vel út og það var mikil ró yfir honum, hann fór að tala við
son okkar og ég ákvað að skola á mér hárið í læknum sem
rann í gegnum húsið, því ég vissi að það væri mjög gott fyrir
hárið. Svo snéri Jón sér að mér og spurði hvernig líður þér
annars? og ég fór að hágráta, hann tók utan um mig og
huggaði mig og ég sagðist sakna hans svo mikið, hann
sagðist þá vilja fá mig aftur en ég sagði að það gengi ekki, ég
væri með öðrum manni, og ég hélt áfram að gráta i örmum
hans..
Ég væri mjög glöð ef einhver gæti ráðið þennan draum, ég
veit allavega að hann er góður…!?