Mig dreymdi alveg furðulegan draum í morgunn!! Ég var í einhverjum molli/kringlu þegar eldgos byrjaði einhversstaðar fyrir utan. Ég ætlaði að sækja bílinn en hann var í neðri bílakjallaranum en þar var glóandi hraun byrjað að flæða. Bróðir minn kom með mér. Við fundum bílinn og reyndum að koma okkur út, keyrðum á milli hraunpollanna og voðalegt vesen, niður brekku, inn í skóg og rosa hasar. En það furðulegasta við drauminn var að bróðir minn var ekki lengur bróðir minn þegar við komum að brekkunni eftir að hafa farið úr mollinu. Hann var geit!!! Og ekki bara einhver geit heldur talandi geit sem alltaf var að gera ráð.

Ég held virkilega að ég sé orðin eitthvað rugluð og þurfi að leita mér hjálpar. En þar sem megin atriði draumsins var eldgos var ég svona að velta því fyrir mér hvort einhver vissi hvað það þýddi.

Með fyrirfram þökk,
Divaa