Ég á við smá vandamál að stríða. Ég hef veirð að missa svefn undanfarna mánuði og er orðinn frekar þreyttur á því. Í hvert skipti sem ég er alveg að ná að festa svefn, þá heyri ég alltaf einhverja rödd, og hún segir alltaf nafn. Kvenmannsnafn, en sjaldan sama nafnið. Alltaf þegar þetta kemur fyrir þá hrekk ég upp og glaðvakna og er alveg ótrúlega lengi að festa svefna aftur, og stundum gerist þetta nokkrum sinnum í röð. Þetta er mismikið eftir því hvar ég er, en það er alltaf eitthvað um það og þá skiptir engu með það hvaða landshluta ég er í. Þetta er búið að sitja alveg rosalega í mér og ég veit ekki alveg hvað ég á að gera. Er einhver hérna sem kannast við þetta ? Hvað á ég að gera í þessu ?

-State of mind… I'd like to go there someday-<br><br>NightWolF - NightFoXX