Það er reyndar dálítið síðan en ég sá einhverntíman þátt á National Geographic eða eitthvað, sem að var um drauga eða sálir fastar hérna, eða hvað sem að þið viljið kalla þetta(ég er ekki neitt fróður um svona dóterí). Þar voru gaurar sem að voru að tala við draug og eitthvað!
Þetta var magnaður þáttur, það var sagt að þeir fóru í hús sem að var búið að breyta, t.d. búið að rífa veggi og færa til o.s.fv.
Þá heyrðist stundum í húsinu marr í hurðum sem að voru ekki einu sinni þar og kannski fótatak fyrir ofan þá þar sem að áður var önnur hæð en er ekki lengur o.s.fv. þá held ég að það séu ekki bara draugar sem að festast hérna, heldur sé kannski bara mynd úr fortíðinni, sem að spilast aftur og aftur og aftur og er bara fast þarna og þ.á.m. eru “draugar” þá meina ég fólk sem er fast í þessari mynd, og sjást kannski stundum, en sjá ekki okkur….

En þetta er bara tilgáta. Svo sagði ég frá hinu, að þeir höfðu talað við draug. Það var sagt að flugmaður hafi dáið einhvertíman og þá fóru þeir í flugskýlið sem hann áti og voru með einhverjar græjur og upptökutæki, og þá heyrðist í kuldalegri röddu svara þeim. Ég man ekki alveg hvað þeir sögðu eða þá hverju var svarað.
Þetta var geðveikur þáttur og mig hefði langað að sjá fleiri svona þætti, en hef því miður ekki gert :(<br><br><i><b><font color=“red”>“Morgoth - The First Dark Lord in Middle-Earth”</font></b></i
…djók