Ég hef, frá því ég man eftir mér, dreymt fyrir litlum ómikilvægum hlutum í lífi mínu. Allt í einu þegar ég er kannski í skólanum að tala við vini mína þá man ég hvað þeir munu segja, eða gera úr einhverjum draumi sem ekki meikaði neinn sens þegar mig dreymdi hann. Þetta eru smá skot sem hafa yfirleitt ekkert gagn eða ógagn. Það er mjög skrýtið að ef einhver er að senda mér boð úr framtíðinni að viðkomandi skuli ekki senda eitthvað mikilvægara! Þó hefur það komið fyrir að mig dreymi fyrir stærri hlutum eins og þegar mig dreymdi fyrir að ég myndi kynnast kærustunni minni sem ég var með í 2 og hálft ár. Mig dreymdi reyndar líka fyrir því að sambandið myndi ekki ganga upp!!!

Kannast einhver ykkar við eitthvað slíkt?
Hefur einhver af ykkur einhverja hugmynd hvað þetta gæti verið?

Biko