Getur einhver glöggur hugari sagt mér hvað það táknar eiginlega að dreyma að maður sé að synda í sjónum með hvölum. Þetta er síendurtekinn draumur hjá mér þó hann sé aldrei eins, t.d. eru ekki alltaf sömu hvalirnir sem ég er að synda með. Ég hef verið að synda með háhyrningi, steypireiði og höfrungum. Mig hefur alla vega dreymt slíka drauma 4 sinnum svo ég muni. Látið mig endilega vita hvað þetta táknar.
Kveðja PUG :)