Í nótt dreymdi mig að ég væri að horfa á sjónvarpið. Svo allt í einu var ég að horfa á mynd í sjónvarpinu. Í myndinni var svona kall sem var svartklæddur að ráðast á konu(ég er sko miklu frekar fyrir spennumyndir og þannig), nema hvað að svo fattaði ég það að þessi kona var ég.
Svo allt í einu voru þau(semsagt kallinn og ég(í sjónvarpinu)) komin inná gólfið í stofunni sem ég var í, ég horfið samt bara ennþá á, og áttaði mig ekkert á því strax að þau væru actually í sama herbergi og ég, þangað til að hann var búinn að drepa mig(sko mig í sjónvarpinu) og var að fara að ráðast á mig.
Rétt áður en hann drap mig(í sjónvarpinu) þá fattaði ég þetta og fór að reyna að skipta um stöð á sjónvarpinu.
Síðan kom þessi gaur og réðst á mig, ég gat ekki gert neitt.Hann náði góðu taki á mér og ég átti erfitt með andardrátt….
Svo hrökk ég upp úr svefninum með þungt fyrir brjósti, var mjög erfitt að opna augun og sá bara grænt í fyrstu. Eftir þetta þorði ég ekki að fara að sofa nærri strax og skalt eins og laufblað í vindi…. Ég hafði ekki horft á neinar ógeðslegar myndir um þetta kvöld eða neitt nýlega.
Veit einhver hvað þetta gæti þýtt??? þetta hefur aldrei komið fyrir áður…en stuttu áður dreymdi mig að ég væri að detta niður af svona virkjun(eins og eru í bandaríkjunum) og vaknaði í loftinu(það hefur heldur aldrei gerst)<br><br>Vissir þú að tungan í steypireyð er jafnþung og fíll? ;)
Vissir þú að tungan í steypireyð er jafnþung og fíll?