Þetta er furðulegasti draumur sem ég hef dreymt en ég man enn eftir því hvenær mig dreymdi þetta og hvernig hann var.

Mig dreymdi þetta nóttina sem ég byrjaði í 1. bekk í grunnskóla. Ég var á leiðinni í skólann en vissi samt ekki að ég væri orðinn of seinn. Ekki nóg með að það var komið niðamyrkur heldur voru öll bekkjasystkinin koma úr ÚTSKRIFTINNI sinni. Meðan ég hafði verið á leiðinni í skólann höfðu bekkjarsystkinin mín klárað allan skólann.

Þó að það sé langt síðan þetta gerðist hef ég alltaf velt fyrir mér hvað þessi draumur merkti. Einhverjar hugmyndir?