Ég er einn þeirra sem les Tarotgreinarnar hennar Abigel af áhuga, og það þótt ég trúi annars ekki nema takmarkað á þetta. En það er frekar vegna þess að ég trúi frekar að vilji manna sé meira og minna frjáls og að þeir séu ábyrgir fyrir því sem þeir gera, á meðan að þetta í.þ.m. dregur úr þeirri ábyrgð, jafnvel eyðir henni alveg, heldur en einhvers annars. Ég hef annars takmarkaðan áhuga á umræðu um forspárgildi Tarotspila eins og er, en þeim mun meiri á sjálfum greinunum/pistlunum.

Það er nefnilega eitt og annað sem ég hef verið að velta fyrir mér varðandi þær/þá (héðan í frá þær). Er ekki hættulegt að negla svona niður, að því er virðist í eitt skipti fyrir öll, hvað hvert og eitt spil merkir? Mér hefur skilist að merking spila sé örlítið breytileg eftir hverjum og einum spilaspámanni, alveg eins og merking geltandi hunds í draumi er breytileg eftir því hvern dreymir hundinn (einhver sem kom að föður sínum hálsbrotnum eftir hátt fall og geltandi hund nálægt tengir eitthvað annað við geltandi hund heldur en sá sem sem var bjargað af geltandi hundum, og svo framvegis).

Merking spilanna er, eftir því sem mér hefur skilist, örlítið breytileg eftir hverjum og einum, eins og þegar sagði. Þetta á víst sérstaklega við mannspilin (hvort sem er í venjulegum stokk eða Tarotstokk), en þau tákna víst gjarna einhverja tiltekna manneskju. En þetta er auðvitað aðeins það sem mér hefur skilist - kannske hef ég alrangt fyrir mér.

En ég er nú aðallega að skrifa þetta til að hvetja fólk til aðeins meiri umræðu um spilin, eftir því sem við á. Að það segi aðeins frá eigin reynslu af einhverju tilteknu spili, ef einhver er.<br><br>Þorsteinn.
All we need is just a little patience.