Mig dreymdi að ég væri að hjóla á vestfjörðum og það var önnur manneskja að hjóla fyrir framan mig og önnur manneskja að hjóla þar fyrir framan og fremst var grafa svo kom maður keyrandi fram úr okkur á vörubíl og sagði okkur að stoppa því að það væri grjótskriða á leiðinni og við stukkum af hjólunum og reyndum að hlaupa en ég gat ekki hlupið það var eins og eitthvað þungt héldi mér ég datt og náði að skríða að litlum kofa þar sem allir voru inni á meðan grjótskriðan hrundi og svo stoppaði grjótskriðan alveg við kofan og þá vaknaði ég.
Hvað merkir þessi draumur ?
Takk fyrir.