ég ætla að reyna að útskýra þetta fyrir ykkur… það er frekar erfitt=)
en alla vega stundum þegar ég er kannski bara úti að labba eða eitthvað þá sé ég kannski tvo bíla keyra framhjá strætóskýli og í strætóskýlinu er gömul kona með töskuna sína… og þá finnst mér að ég hafi séð nákvæmlega það sama áður! þetta gerist oft og hefur líka skeð fyrir vinkonur mínar, þær töluðu um að þetta væri útaf því að manni hefði dreymt þetta áður og myndi það svo bara allt í einu þegar maður sæi þetta…..
hefur þetta komið fyrir ykkur og vitiði hvort þetta er út af draumum eða einhverju..???? mér finnst þetta frekar skrýtið:/<br><br>Kv.
Sweet (",)
================
Játs!