Mig dreymdi í nótt að ég var að hlaupa frá vinkonu minni með tveim öðrum vinum mínum. Ég hélt á tarot spilunum mínum í hendinni. Við hlupum á klettum og það var steikjandi sól og sjórinn var tær eins og kristall. Svo stoppuðum við og biðum eftir vinkonu minni.
Svo vorum við að synda í sjónum og ég misti eitt spilið mitt(ég man ekki hvaða) og horfði á það sökkva dýpra niður í sjóinn. Endirinn var sá að ég náði því ekki og horfði á risastóra sólina og var svo heitt.
Ef einhver getur ráðið þennan draum yrði ég mjög þakklát!

Kveðja

Lola