Ok, ég hljóma kannski paranoid eða eitthvað, en mér finnst hálfundarlegt hversu hratt Abigel flýgur upp ofurhugalistann. Um daginn var hún önnur, svo sendir hún inn eina grein um Tarot og þá flýgur hún upp um a.m.k. 30 stig og er orðin hæst! Hversu mörg stig er hægt að fá fyrir eina grein? Ég hélt það væri bara 10 eða er ég kannski bara svona vitlaus? Finnst þetta fremur skrítið. Ég held a.m.k. að ég sé búin að senda inn allavegna jafnmargar greinar ef ekki fleiri alls og ekki fæ ég svona mörg stig. Ég er ekki að segja að ég sé í einhverju ofurhugakapphlaupi, alls ekki, mér gæti ekki verið meira sama um það. Ég er heldur ekki að segja að tarot greinarnar séu ekki góðar, því þær eru það, en ef hún er að fá fleiri stig en hinir af því hún er stjórnandi finnst mér það ekki sanngjarnt. Segið mér ef ég að bulla, því ég er ekki alveg að fatta hvernig stigafjöldinn hennar gengur upp.

Kveðja,
Divaa

P.S. Fyrirgefðu Abigel, ég er ekkert á móti þér eða neitt svoleiðis, mér finnst þetta bara dálítið skrítið. Segðu mér bara ef þú ert móðguð og hvort þessi fyrirspurn á rétt á sér eða ekki og þá bið ég hér með afsökunar fyrirfram.