Mig dreymdi geðveikt spúkí draum um daginn og ég var að spá hvort einhver þanna úti gæti sagt mér hvað hann þýðir.

Mig dreymdi að ég var að fara í einhverskonar ferðalag og rúturnar sem fóru þangað voru þrjár og ég átti að velja hvaða rútu ég ætlaði í. Ég nennti ekki að spá mikið í því og valdi bara síðustu rútuna. Svo vorum við að keyra yfir brú og á hinum enda brúarinnar var fjall og fjallavegur meðfram fjallinu.Ég gat séð hinar tvær rúturnar fyrir framan mig. Fyrsta rútan keyrði upp fjallavegin og hvarf svo bakvið fjallið og þegar hún keyrði yfir molnaði hluti af veginum og féll oní hafið(það var sko haf allt í kringum okkur) svo keyrði seinni rútan yfir og hvarf bak við fjallið og stór hluti af veginum molnaði niður. Ég var orðin verulega áhyggjufull en bílstjórinn hélt bara áfram og þegar það kom að okkur molnaði vegurinn alveg og rútan féll lengst niður og oní hafið
Hljómar þetta ekki eins og þetta eigi að þýða eitthvað voða merkilegt?? Ef einhver nennti að lesa þetta þá vil ég endilega fá álit frá einhverjum.