Mig dreymdi hinn furðulegasta draum í langan tíma fyrir nokkrum dögum.Ég tek mjög mikið mark á draumum sem eru marktæki. SKil ekki hvernig ég þekki þá, ég bara hef tilfinningu sem ekki er auðskírð. Enn allaveganna, hér kemur draumurinn. Það var dimmt úti og ég gekk inn í hús sem virtist vera úr timbri(líkt kofa skógarvarða) Ég var mjög undrandi fyrst hvar ég væri og horfði í kringum mig. Það var stelpa sem systir mín þekkir við skrifborð og mér fannst fyrst eins og systir mín væri læknir eða eitthvað, man ekki hvað ég hugsaði þá) Enn þetta var bara svona dæmigert sem maður gerir í draumum þegar maður þannigséð finnst þetta of skrítið til að geta verið raunverulegt. Enn eftir þetta þá hélt draumurinn áfram.Ég vissi að ég hefði komið þangað því ég var að flýja einhvern/eitthvað og hélt áfram að skjálfa og fann hræðsluna yfirtaka mig(hérna hélt draumurinn áfram eftir þetta reality check)ég byrjaði að skjálfa og hegða mér móðirsjúkslega. Það var eins og einhver væri að reyna að ná mér sem hafði hrætt úr mér líftóruna og ætlaði að drepa mig eða eitthvað. Ég sast niður á stól, á meðan ég grét þá öskraði ég af hræðslu eða eitthvað. Svo byrjaði dyrinn að opnast og ég hreinlega panicaði…ég öskraði og skalf, ég lét hendurnar fyrir mig eins og manneskjan sem væri að koma inn ætlaði mér eitthvað illt. Aldrei í lífi mínu hef ég verð svona hrædd í draumi…. enn svo var bara fólk að koma inn, einhver koma með ljóst stutt hár og maður. Virtust vera hjón. Þau horfðu bara undrandi á mig. Svo endaði þetta. Þegar ég vaknaði (eftir þessa hræðilegu stund í draumnum) þá datt mér nokkuð í hug afhverju ég var svona hræðilega hrædd í draumnum. Fyrri að kannski mér hefði verið nauðgað í draumnun enn mér fannst það hræðilega ólíklegt. Enn sú seinni gæti verið líklegri. Í 5 ár núna hef ég verið að að pæla og spá í göldrum enn bara nýlega byrjuð ásamt öðrum að framkvæma hann. Kannski þetta sé ótti minn við galdra eða einhvern? Ég er virkilega lost í þessu og mér finnst þessi draumur virkilega mikilvægur að einhverju leiti, bara veit ekki hvernig…

ef einhver hefur einhver ráð eða eitthvað þá væri það frábært!!!

takk
kv.Cilitra Mist
http://www.myplace.at/Cilitra
cilitra.com