Mig dreymdi alveg stórfurðulegan draum í nótt og er að velta fyrir mér hvort hann hafi verið fyrirboði. Mig dreymdi að ég var á einhverjum stað sem ég hef aldrei séð áður, þetta var einhverskonar svefnloft og ég átti að fara að sofa í pínulitlu rúmi, komst varla fyrir í þvi, nema hvað að við hliðina á rúminu er hjónarúm og því eru strákar sem ég hef verið með og svo aðrir sem ég hef verið hrifin af og þeir eru allir sofandi nema strákur sem ég er hrifin af núna hann sat uppi og horfði á mig. En ég fór bara að sofa (í draumnum) og vakna við að það er verið að pikka í mig og er þetta núverandi kærasta fyrrverandi kærasta míns, og hún segir mer að fara á fætur, við ætlum að djamma saman því hún nenni ekki að standa í e-u strákastússi lengur og hún er búin að henda strákunum út, ég hef aldrei talað við þessa stelpu og skil ekkert afhverju mig var að dreyma hana. Ég svaf yfir mig í morgun útaf draumnum, það var svo mikið að gerast í honum, og tók því annan strætó og á öðrum tíma en ég er vön og viti menn minn fyrrverandi kemur inní strætóinn (hef ekki talað við hann í tvö ár) og kom og talaði við mig og sagði mér það að hann hafi verið að hætta með kærustunni… fyriboði eða hvað
kv MiaM