Ég trúi alls ekki á drauga og svoleiðis..
en mér er byrjað að líða mjög illa þannig ég leita eftir svörum á öllum miðum…

Ég bý í STÓRU húsi og ég get skipt húsinu mínu í tvennt hvar mér líður vel og illa…
Öll herbergin sem snúa að götunni þar líður mér vel en öll herbergin sem snúa að garðinum þá verð ég bara ósjálfrátt skíthrædd. Alltaf mjög taugaóstyrk og alltaf að líta í kring um mig,bara eins og geðsjúklingur,eg fatta oft ekki afhverju ég geri þetta.
En mér fynnst ég ekki vera ein og líður alls ekki vel.

Manneskja sem ég þekkti dó nýlega og kvöldið sem hann dó þá fann ég allskynns skrítnar tilfinningar,ég hélt að kannski að hann væri að kveðja mig.
En síðan þá fynnst mér eitt herbergi í húsinu(sem snýr að garðinum)
skelfa mig rosalega…ég loka hurðinni þar og þá líður mér betur.
Þessi manneskja líkaði mjög vel við mig og óskaði mér alls hins besta þannig hún getur ekki verið að leika sér að mér.

Hvað er þetta?
Ekki halda að ég sé hæper ýmundunarveik manneskja því ég er oftast sú sem verð aldrei hrædd og alls ekki myrkfælin eða neitt slíkt.

endilega segið mér skoðun ykkar..