Hafið þið einhvern tímann lent í því að sálir koma til ykkar í draumi? Ég lenti einu sinni í því að mig dreymdi að það kom til mín maður og kona. Maðurinn hafði stytt sér aldur og konan var með honum til að hjálpa honum að komast nær mér.Fyrstu nóttina þá fann ég að þau stóðu yfir mér og blésu köldu á mig.Mér brá svo að ég hrökk upp,ég pældi ekki meira í þessu. Svona gekk þetta í 3 nætur þar til 4 nóttina þá öskraði konan á mig en karlinn stóð fyrir aftan hana,ég hrökk upp í draumnum.Ég vissi ekkert hvað ég átti að gera en svo allt í einu þá öskra ég á móti “þetta er mitt herbergi svo farið þið burt og látið mig vera”.Þegar ég var búin að öskra nokkru sinnum á þau þá vaknaði ég.Ég kveikti ljósið og reyndi að sofna aftur sem var ekkert smá erfitt.Ég gafst uppá að sofa í herberginu mínu og fékk að gista hjá vin mínum.Mamma var svoldið hissa á þessu og spurði mig afhverju ég svæfi ekki heima hjá mér.Ég sagði henni frá þessu,þá hringdi hún í miðil sem gat lýst íbúðinni og sagði henni hvað væri að gerast.Hann sagði að ég væri svo opin að það kæmi skært ljós frá mér þegar ég svæfi að þessi maður héldi að þetta væri ljósið sem hann ætti að fylgja. Og sagði mömmu að ég ætti alltaf að sygna yfir magann á mér áður en ég færi að sofa.Það ætti enginn að sofa í herberginu næstu 3-4 nætur og að hann ætlaði að senda hjálp.Pabbi vissi ekkert af þessu.Eina nóttina þá heyrði hann einhvern hósta og hálf partinn hvæsa,seinna spurði hann mig hvort að ég væri að kvefast því að ég hóstaði svo mikið um nóttina.Ég horfði undrandi á hann og sagði honum að ég hafi ekki sofið í herberginu um nóttina.Ég held að það hafi farið smá hrollur um pabba.Mamma fór inní herbergið og sygnaði yfir allt en þá fann hún að það var tekið um axlirnar á henni og stýrt henni út.4 dögum seinna kom ég heim og mamma kallaði til mín að þetta væri farið og mér ætti að vera óhætt að sofa heima núna.Ég svaraði “ég veit að þetta sé farið”.Ég fann það um leið og ég kom inn um dyrnar og þvílíkur léttir.