Búin að vera að sjá og heyra lengi vel Allo,
Ég hef séð og heyrt margt sem margir myndu ekki geta ráðið við, ég hef verið að heyra raddir og sjá margt frá því að ég var 4 ára gömul og ég er að verða 18 ára.
Mig langar aðeins að útlist smá fyrir ykkur af því sem ég hef gengið í gegnum.

Þegar ég var 4 ára sá ég konu ú einu horninu í herberginu mínu og ég varð mjög hrædd og fór til ömmu og sagði við hana að það væri draugur í herberginu mínu, hún benti mér á það að draugar væru ekki til og sagði mér að fara að sofa. Ég fór aftur upp í herbergi og sá konuna aftur ég ákvað þá að vera soldið köld og spyrja hana hver hún væri, ég sá að varir hennar bærðust en ég heyrði ekkert, ég komst svo að því að mamma hafði séð þessa konu þegar hún gekk með mig, en það undarlega við þessa sýn var það að mamma var að eiga systur mína þegar ég sá hana, ég get lýst fyrir ykkur konuni í smáatriðum, ég veit MJÖG mikið um hana sem ég ætti ekki að vita!

Ég fór í heimasvistarskóla þegar ég var 6 ára og þegar ég var í 7 bekk þá framdi einn strákur sjálfsmorð í skólanum, ég sá hann oft efir það og annan strák sem hafði framið sjálfsmorð mörgum árum áður, ég sá þá oft sitjandi í stiganum sem var á milli stelpna og stráka vistarinar, vinkona mín sá þá einu sinni ég veit ekki afhverju hún sá þá því að hún hefur marg sinnis sagt að hún hafi ekki neina sérstaka hluti, en hún fékk sjokk við að sjá þá.

Það hafa margir sem geta séð og heyrt meira sagt við mig að það væru margir sem fylgdu mér og það er alltaf auðveldast að greina 2 verur, hund/úlf (fólki er ekki alltaf sammála) og konu sem er með heimsins sorgir og depurð í augunum, ég veit af þessum tvemur en það eru víst fleiri sem líka fylgja mér, ég á greinilega einhverju ólokið sem ég þarf að fara að gera upp við, en ég veit líka að konan sem fylgir mér þarfnast hjálpar minnar en hvernig veit ég ekki!

kv. Taran