Það kemur oft fyrir mig að ég fer td að hugsa um einhverja ákveðna persónu sem ég hef kanski ekki séð í langan langan tíma. Þetta gerðist td í síðustu viku, þá fór ég að segja kærastanum mínum frá strák sem ég hafði þekkt þegar ég var lítil og hef ekki séð í mörg ár. Síðan gerðist það, bara nokkrum dögum seinna, að ég hitti þennan strák!! Skrítið. Ég las í Celestine handritinu fyrir nokkrum árum síðan að þegar maður hittir einhvern, sé það oft vegna þess að hann sé með einhver skilaboð til manns eða eitthvað þess háttar. Ég get vel trúað því að þetta sé þannig, en hvernig ætli maður finni þá út skilaboðin sem maður á að fá? Er þetta kanski bara tilviljun eða ætli það sé eitthvað á bak við þetta?