Þegar þú ert í garðinum þínum og sérð könguló spinna þá er einhver að brugga ráð gegn þér. Ef köngulóin spinnir í átt að jörðu mun ráðabruggaranum mistakast. Ef hún spinnir í átt að himninum gerðu þá eitthvað fljótt til að vernda sig. Ef hún er iðjulaus er það fyrir góðu.

Ef þú drepur könguló kemur rigning. Ef könguló kemur til þín eru fréttir á leiðinni. Ef það er köngulóarvefur í grasinu rignir um kvöldið. Ef þú geymir könguló í skel utan um hálsinn er það fyrir heppni. Ef þú vilt lifa og þrífast áttu að leyfa henni að hlaupa um frjálsri (If you want to live and thrive Let the spider run alive)

Köngulóin spinnir, vefur, skapar og bindur. Hún er sögumaður, orðavefari, tengiliðill milli fortíðar og nútíðar, hin mikla vampíar, veiðimaðurinn, hrekkjalomurinn, svo klár að spinna í kringum sannleikann og lætur hann líta svo fallega út að þú neitar að trúa að hann sé hryllingur. Hún er móðir stjarnanna og gæslumaður jarðarinna.

Miklu meira er til um köngulær en þetta verður að duga í bili og ég vona að þið hafið gaman að þessu.