Í gær þá fór ég á miðilsfund. Það gaf mér rosalega mikið að fá fréttir af látnum ættingjum mínum, sérstaklega að fá að heyra frá pabba mínum sem ég missti skyndilega í sumar. Það eru alveg ótrúlegustu hlutir sem koma fram á svona fundum, hlutir sem enginn ætti að geta vitað nema ég ein. Ég velti því mikið fyrir mér, þó svo að ég trúi á þetta og allt og sé ekkert að efast um neitt, þá kemur stundum sú hugsun hvort að þetta sé ekki bara allt saman plat……en hvernig ætti miðillinn að vita þessa hluti sem ég hef verið að hugsa um? Gæti það verið að hann lesi hugsanir? Er það möguleiki? Eða eru það virkilega hinir látnu sem koma og tala við hann?
Ég hef oft farið á miðilsfundi, til spámiðla, spákvenna, heilara, læknamiðla og áruteiknara og hafa þau öll sagt nánast það sama(þá meina ég um framtíðina mína og svoleiðis). Þannig að þetta hlýtur að vera satt og rétt.
Einhverntíman heyrði ég um kenningu sem var þannig að maður er dáleiddur um leið og maður kemur inn og með þeim hætti geta þeir nálgast helstu upplýsingar um mann!!! Maður hlyti samt að fatta það, haldiði ekki????