Núna 3. nóvember er verið að frumsýna directors cut á the exorist. Þegar ég sá gömlu myndina á sínum tíma, svaf ég ekki í viku og ákvað að sjá hana aldrei aftur…
En það er eitthvað… Málið er að ég er að deyja úr forvitni. Ég veit að mér á eftir að líða mjög illa eftirá, en ég ætla á hana. Þetta er directors cut, sem þýðir að í myndinni verða atriði sem áður voru klippt út. Þeir sem eru viðkvæmir eða MIRKFÆLNIR ættu alls ekki að sjá myndina. ÉG veit vel að “the curiosity killed the cat” en ég ætla samt. (Þannig að ef þetta er síðasta greinin mín þá bið ég bara að heilsa öllum lifendum).