Vinsælt viðfangsefni, en áhugavert samt sem áður. Hvað eru þeir? Ég held að ef þeir séu til þá eru þetta sálir sem hafa orðið fyrir áfalli í lífinu og ekki getað farið burt. En síðan eru til draugar sem virðast vera hérna í sérstökum erindagjörðum, móðir mín var með frænku sína hangandi yfir sér í nokkur ár, síðan kvaddi hún einn daginn. En aðalspurningarnar sem standa í vegi fyrir því er: Hvort draugar séu til? Hvernig getum við haft samkipti við þá? Afhverju geta þeir ekki farið? Kannski eru þetta sterkar minningar sem festast við ákveðin stað? Hver veit?

Með kveðju
Siva