Til að byrja með vil ég segja að ég trúi mikið á svona allskonar dulspeki. Þetta er eitthvað sem virkilega vekur áhuga minn. Ég hef pælt svolítið í þessu í svolítinn tíma og til gamans má geta að ég gerði ritgerð um nornir fyrir stuttu, og komst þá að ýmsu. Fyrir þá sem vilja geta þeir sent mér póst og ég skal senda þeim ritgerðina. Þó að mörgum finnist þetta kannski skrítið þá heillar þetta mig og ég trúi því að það sé til eitthvað þarna hinum megin, að við deyjum ekki bara og þá verði allt búið. ég held jafnvel að við fæðumst aftur sem sama sálin nema bara í nýjum líkama. Nú trúi ég þó ekki á Guð.. þeas ég er ekki kristin og ég held bara að ég sé ekki búin að finna mitt trúarbragð, ef mér er ætlað að trúa á eitthvað. Tíminn mun leiða það í ljós. Allavega það sem ég var að velta mér er það hvort að einhvern hérna hefur farið til miðils eða spákonu. Ég er nú aðeins 16 ára og er ekki búin að fara (ennþá) en er þó búin að fá leyfi til þess, og ætla mér að fara á næstunni. Mér finnst að það sé eitthvað rétt og satt til í þessu en ég veit það samt að það eru til alveg örugglega fullt af þessum miðlum og spákonum sem eru bara fake. Eru bara í þessu til að svindla á fólki og græða peninga á því. Það sem ég var helst að leitast eftir var það hvort að einhver gæti sagt mér frá sinni reynslu og hugmyndum um svona hluti.
Ef það eru einhverjar spurningar eða ath. semdir endilga sendið mér mail.

Með kveðju, Inga :)