Hefur þú lent í því að þú hefur einskonar vaknað á nóttuni og héldir að þú værir vakandi inn í draumi. Eða vaknað og verið algjörlega lamaður, færð þrysting út um allan líkama og getur ekki talað. Eða fundist að þú værir að detta inn í rúmið eða ekki fundið fyrir líkamanum þínum. Eða heyrt og séð hluti í kring um þig þegar þú ert sofandi. Verið hrædd(ur) að vakna út út af hljóðum, s.s. braki, skrítnum ískrum, tali eða söng ?

Ég hef smá sögu að segja og þetta kemur fyrir í söguni.

Þegar ég var 7-8 ára flutti ég í aðra íbúð með mömmu og pabba. Ég var búinn að búa þar í rúmt ár. Ég lenti í því að ég var sofandi um nóttina, ég vaknaði við skrítið hljóð, svona hvísl. Það var eins og það væri einhver í kring um mig að vesenast. Ég þorði ekki að opna augun út af því að ég var allt of hræddur. Ég vildi ekki fara inn til mömmu og pabba út af því að ég væri allt of gamall til að sofa hjá mömmu og pabba. Ég ákvað að opna augun, en gat það ekki. Ég reyndi eins og ég gat, en ég gat ekki einusinni hreyft mig. Ég loksins náði að opna augun og sá einhvern fyrir framann mig. Þegar ég opnaði augun sá hann að ég hefði vaknað og sagði við mig “hvað ertu að gera” og hljóp burt. Ég var alveg stjarfur af hræðslu. Eftir ca 2-5 sec eftir þetta steinsofnaði ég og vaknaði morguninn.
Ég hef lent í nokkrum tilfellum sem eru mjög svipuð og sum hafa verið mjög alvarleg. Þetta fór svona að þróast hjá mér meira og meira og ég hætti að verða hræddur og lét þessa tilfiningu fara framhjá. Þegar ég var orðinn 23 ára gamall fór ég að sjá meira hvað var að gerast. Ég var farinn að sjá sjálfan mig sofandi, ég var farinn að geta farið á staði s.s. heim til bróður míns eða þá staði sem ég hugsaði um á ógnarhraða. Þetta var eins og ég væri vakandi og allt var svo skýrt og ég gat nokkurnveginn skynjað allt sem var í kring um mig.
Ég vaknaði alltaf um morguninn og hugsaði hvað þetta væri meiri vitleysan. En var samt sem áður alltaf að hugsa hvort að þetta væri satt eða ekki. Ég fór í vinnuna og leytaði af einhverjum upplýsingum um þetta og óvart fann síðu sem innihélt svokallað astral projection eða útúr líkama experience. Það fyrsta sem ég sá á þessari síðu að hvernig tilfiningar fólk fær við þessa reynslu. Ég sá að allt passaði við það sem kæmi fyrir mig á næturnar. Ég fór að fá meiri áhuga á þessu og keypti bækur, þ.e Flying without a broom, astral projection denning & phillips (allt of flókinn) og svo var það astral travel for beginners. Þetta eru bækur sem fjalla um hvað astral prjoection er og hvernig er hægt að auka það.
Ég hef komist að því að það eru margir sem fá svona tilfiningu og segja að þetta sé bara einhver draumur eða það hafi legið einhvernveigin þannig að það hafi ekki farið nóg blóð upp í heila.
Eftir að ég uppgötvaði þetta fór ég að læra meira á sjálfan mig, fór að hugsa skýrar, get hugsað rökréttara og er ánægðari með sjálfan mig. Það eru allir sem geta gert þetta og þurfa ekki sérstaka hæfileika til að fara út úr líkamanum sínum. Það eina sem það þarf er að trúa, ekki vera hrædd(ur) og þjálfa sig með þeim aðferðum sem eru í ýmsum astral projection bókum. Eftir að þú ert búinn að ná tökum á þessu og farinn að geta farið úr líkamanum þegar þú vilt, getur þú gert í rauninni hvað sem er. Þú getur farið út í geiminn, skoðað mars eða túnglið og séð hvernig það lítur út. Þú getur farið aftur eða fram í tímann og séð hvernig allt var eða verður. Þú getur farið á aðrar plánetur þar sem annar heimur með fólki sem er mjög svipað útlítandi. Þú getur talað við alla, því þetta er einskonar hugsanaflutningur þú hugsar en finnst eins og þú sért að tala og færð svar sem þú skilur. Þú getur flogið eða hitt dáið fólk. Þú getur fengið ráðleggingar hjá æðra fólki. Þú getur gert hvað sem er, og allt þetta leiðir gott af sér.