fann þetta á www.spegill.is
Bara að senda þetta til að opna huga ykkar ;)
eða reyna það hjá sumum.


Stórfelldar náttúruhamfarir í vændum
- segir Edda Sigurðardóttir sem sér inn í framtíðina

Það er ekki á hverjum degi sem fólk kemur fram opinberlega og segir frá dulrænni reynslu sinni, hvað þá viðurkenni að geta skyggnst inn í framtíðina. Edda Sigurðardóttir segist hafa séð og haft samskipti við framliðna frá því að hún var barn og oft fengið að sjá fyrir um óorðna atburði.


Edda er fimmtug, glæsileg fimm barna móðir og að sögn þeirra sem þekktu til hennar var hún ein fallegasta kona landsins á Glaumbæjarárunum. Hún var á sínum tíma vinsæl söngkona og söng í nokkur ár með Ragga Bjarna á Hótel Sögu.

Fólk sem leysist upp
,,Þegar ég var barn sá ég oft lítinn en skæran ljósgeisla inni í herberginu mínu sem leið hægt yfir. Ég minnist þess ekki að hafa velt þessu mikið fyrir mér en fimm ára gömul var ég farin að tala við fólk sem aðrir sáu ekki.“ Edda segir að fólkið hafi í flestum tilfellum verið ókunnugt og að það hafi birst henni bæði innan dyra og utan. ,,Þetta var fólk alveg eins og ég og þú en átti oft eitthvað erfitt. Það birtist mér á sama hátt og ég sé þig sitja fyrir framan mig. Stundum kom það gangandi inn heima eða að ég vaknaði með það við rúmstokkinn. Það fer ekki á milli mála þegar þér birtist manneskja sem síðan leysist upp fyrir augum þér að hún er framliðin eða að minnsta kosti ekki eins og fólk er flest.”

Skildi við
,,Fólkið sem ég sé er allt á besta aldri, manneskja sem deyr fullorðin endurfæðist hinum megin mun yngri og börn eldast. Það er til dæmis stutt síðan ég sá föður minn sem er látinn og hann er ungur þar sem hann er í dag.“ Edda segist halda að fólk hinum megin sé yfirleitt í kringum þrítugt og síungt eftir að það yfirgefur þennan heim. Klæðnaður fólksins fer eftir því hvar það er statt í þroskaferlinu. Pabbi var til dæmis í fötum sem ég man eftir en ég hef líka séð fólk í hvítum kyrtlum.

Ég hef sjálf upplifað það að deyja út frá barnsburði. Mér var að blæða út og skildi við eins og ég vil kalla dauðann. Það er eins og maður fari á leifturhraða í gegnum dimm göng í áttina að ljósi sem er allt öðruvísi en ljósið í mannheimum. Mín stund var ekki komin og mér var því snarlega kippt til baka og sett í líkamann aftur. Það eina sem við gerum þegar við deyjum er að yfirgefa líkamann. Sálin flyst annað og líkaminn endurholdgast á öðru tilverustigi.
Ég vil endilega að fólk átti sig á því að það er ekkert að hræðast eftir viðskilnaðinn við líkamann. Okkar bíður mun betri áfangastaður og betra líf.”

Sálnaflakk
,,Einu sinni var ég sótt og flutt yfir á annað tilverusvið. Ungur félagi minn hafði drukknað skömmu áður. Hann var mjög ósáttur og ég var sótt til að hjálpa honum. Ég var flutt á stóran spítala þar sem fólki er hjálpað til að átta sig á því að það sé komið yfir á annað tilverustig. Okkur er öllum hjálpað þegar við komum hinum megin en það gengur misvel vegna þess að fólk sættir sig ekki alltaf við það.“ Edda segist hafa setið hjá félaga sínum, haldið utan um hann og talað við hann um stund áður en hún var send til baka.

,,Þegar svona lagað gerist finn ég þegar sálin yfirgefur líkamann, hann verður eftir og ég sé hann liggja í rúminu. Sálin er alltaf til staðar, mín sál mun fylgja mér allar götur. Þegar við deyjum rotnar jarðlíkaminn en endurholdgast að nýju hinum megin og sálin sameinast honum aftur. ,,Hann verður hraustur og heilbrigður því þar þekkjast engir sjúkdómar. Líkami og sál eru í raun eitt.”

Sitjari með Hafsteini miðli
,,Ég var á sínum tíma sitjari hjá Hafsteini Björnssyni miðli en það felst í því að vera eins konar tengiliður miðilsins og framliðinna. Ég gerði það meðal annars til að fá hjálp vegna þess að ásóknirnar voru svo miklar á tímabili að ég hafði engan frið og réði ekki við neitt.“ Edda lítur svo á að hún sé í góðu sambandi við Jesú Krist og með hans hjálp hafi hún náð sér. ,,Ég hef séð Krist og hann hefur lagt yfir mig hendur, hann er minn besti vinur.”

Sér fyrir náttúruhamfarir
Edda segir að amma sín sem hét Jóhanna Linnet hafi verið skyggn og að hún birtist sér stundum og leyfi henni að sjá fyrir stóra atburði. ,,Það er svo margt sem ég hef séð. Ég sá til dæmis fyrir jarðskjálftann í fyrra tæpu ári áður en hann átti sér stað. Mér var líka leyft að sjá fyrir um gosið í Vestmannaeyjum á sínum tíma og margt fleira. Ég sé almennt fyrir náttúruhamfarir og hef oft sagt vinum mínum og fjölskyldu frá atburðum sem rætast seinna og þeir sem þekkja mig fara eftir ráðum mínum hvað það varðar.“ Af skiljanlegum ástæðum renna nú tvær grímur á blaðamann DV og hann veit ekki hvort hann á að hlæja eða hvá, hann grípur því til þess ráðs að gera hvoru tveggja í senn. ,,Það er mikill tímamunur á okkar heimi og heiminum hinum megin þannig að tímasetningar eru ekki alltaf nákvæmar. Þetta er eins konar vitrun, mér er sagt frá eða sýndir atburðir af manneskju sem vinnur í gegnum mig en ég get ekki útskýrt það frekar. Ég er í sambandi við margar manneskjur en amma mín hefur sýnt mér flest.”

Miklar hamfarir fram undan
Þegar Edda er spurð hvort við megum búast við náttúruhamförum á næstunni svarar hún því játandi og þagnar um stund áður en hún heldur áfram. ,,Framtíðin er óljós en um leið fyrirsjáanleg og ég veit að það eru margir sammála mér um það að við séum á leið inn í rosalegt ferli. Það koma til með að verða miklar náttúruhamfarir hér á landi og annars staðar í heiminum í nánustu framtíð, eldgos og mikið hraunrennsli.“ Að sögn Eddu er tiltölulega stutt í ósköpin og hamfarirnar verða mestar á Suðurlandi. Þegar gengið er á hana og hún beðin að vera nákvæmari segist hún eiga við ,,feikilegar hamfarir sem ná yfir stór-Reykjavíkursvæðið”.

Skrítna fólkið
Í lokin er freistandi að spyrja Eddu hvort hún hafi velt því fyrir sér hvort hún sé ekki bara einfaldlega biluð og þurfi á hjálp sálfræðings að halda. Hún hlær og segir að það hafi aldrei hvarflað að sér að hún sé biluð. ,,Það er mikill munur á því að vera veikur á geði og að upplifa svona lagað, það vita allir sem sjá meira en gengur og gerist. Þegar ég sat miðilsfundi í gamla daga kom stundum maður að handan sem kallaði sig Runki. Hann var mjög gamansamur og skemmtilegur og hann kallaði okkur sem sjáum alltaf skrítna fólkið."