Book of shadows Hér ætla ég að skrifa um dáldið sem er kallað Book of shadows eða Skuggabók. Ég vil engin skítköst eða leiðindi hér þó að allir hafi rétt á að hafa sínar skoðanir. Bara benda á að það er hægt að segja mér finnst eða mín skoðun er. Svo margir sem eru að hanga hér inná bara til að skrifa skítacomment.

Book of shadows eða Skuggabók er eitt af mörgum verkfærum norna,hún er mjög mikilvæg og allar nornir ættu að eiga eina. Það skiptir ekki máli hvernig hún lítur út eða hvernig hún er bara það sem þér finnst flott og gott.Hún má vera heimagerð,hún má vera keypt. Hún má vera með 5 arma stjörnu,hún má vera hvernig sem er! Þú getur í rauninni gert hvað sem þú vilt með hana og hér koma nokkrar hugmyndir:

*Alla galdra sem þú gerir
*hvernig galdrarnir tókust
*hversvegna þú framdir galdurinn
*galdraathafnir sem þú hefur farið í
*netsíður um galdra
*um wicca
*um magíu
*klúbba
ofl.ofl.

En þú skrifar ekki dagbók í Book of shadows í svoleiðis er notuð önnur bók sem ég mun skrifa um seinna.
Ekki vera segja öllum og sýna þína Book of shadows nema þú treystir viðkomandi mjög vel og veist að honum/henni er vel treystandi. Ekki lána hana
Afþví að því miður þá fer sumt fólk ekki jafn vel með þína hluti og sína eigin.