Ok, ég ætla að segja frá draumi sem mig dreymdi núna í morgun, mér fannst hann svo áhugaverður að ég vildi deila honum hér og helst í grein. (Ef einhver er ósammála þá verður hann bara víst að henda honum í korkana)


Ég vaknaði núna í dag klukkan 09:00 15 Maí. Það er próf á morgun semsagt 16 Maí og ég vildi ekki læra strax og vildi aðeins sofa lengur. En áður en ég gerði það fór ég eitthvað aðiens í tölvuna og fór að downloada nokkur torrent og síðan hlustaði ég á eitthvað “Dose” í I-Doser til þess að róa mig algjörlega niður svo ég gæti sofnað vel aftur.

Eftir að Doseið kláraðist þá lagðist ég á hlið, og fannst það einkum þægilegt og hafði sterklega á tilfinninguni að mig myndi dreyma “Lucid Dream”.

Ég er þessi týpa sem getur yfirleitt bara sofnað þegar ég ligg á maganum, aldrei þegar ég ligg á bakinu en stundum þegar ég ligg á hlið. Í þetta skipti tókst það á hlið. (Og þegar ég hlustaði á Doseinn þá var ég að sjálfsögðu á bakinu svo a' ég myndi ekki sofna á meðan því stóð.)

Doseið kláraðist og ég tók headphoninn af mér og lagðist á hliðina og leið ekki lengi á að ég var staddur í einhverju rosa fínu matarboði með öllum bekkjarfélögum mínum og einhverjum fyrrverandi vinum mínum sem voru með mér í grunnskóla. (ATH, þessi draumur er LUCID frá upphafi)
Að sjálfsögðu tóku allir áfengi með sér og þetta var bara svona venjulegt salapartý.
Allt í einu finn ég svona fyrir einhverri tilfinningu að ég get flogið. (Get nær oftast flogið þegar mig dreymir Lucid, en stundum þarf ég að einbeita mér rosa mikið til þess að geta það, og yfirleitt tekst það mjög takmarkað)
En í þetta skiptið var það öðruvísi, ég þurfti bara rétt svo að einbeita mér og ég var strax farinn að svífa, og ég hugsaði bara með mér vááá.

Ég er yfirleitt soldið fyrir það að sýna fyrir öðrum og skemmta fólki og sýndi ég náttlega öllu fólkinu að það var hið minnsta mál fyrir mig að fljúga alveg uppí loft, gerði það meira að segja blindandi í draumnum :P

Svo seinna meir gerði ég það sama aftur og reyndi að snúa mér á hvolf í loftinu svo ég væri up-side down í loftinu. En það leið ekki á löngu að ég datt í gólfið og meiddi mig soldið. Fólkið spurði hvort það væri ekki í lagi með mig og ég sagði að sjálfsögðu að þetta væri ekkert og reyndi að halda coolinu.
(Þannig þá lærði ég að lappirnar þurftu að snúa niður eða á hlið til þess að ég gæti flogið)

Salapartýið hélt áfram dágóða stund og ekkert sérstakt gerðist í langan tíma.

Einhver bekkjarfélagi minn (sem er venjulega með rosa mikil vandræði þegar að hann er fullur) rispaði eitthvað sýningarmótorhjól og tjónið var 154.000 krónur, og ég man þessa tölu nákvæmlega hún var eitthvað svo skýr í draumnum.

Svo byrjaði ég að sýna einhverjar fleiri kúnstir og byrjaði að lappa á hlið á veggnum, sem var ofur töff. Síðan þegar ég er kominn efst upp og spyrni mig frá veggnum þá brýt ég eitthvað sem ég var að lappa á veggnum. (Og vinur minn þarna úr grunnskóla fer að skellihlæja, finnst þetta svo fyndið)

Ég náttlega í shokki og seinna meir kemst ég að því að tjónið var 435.000 krónur, samt var mér alveg sama vegna þess að þessi staður var eitthvað tryggður og það reddaðist með einhverjum rökræðum sem ég átti við eigandann í húsinu.


Svo fer allur bekkurinn plús fullt af fleiru fólki niðrí sal. Mig leið eins og ég væri á árshátið, allur skólinn þarna kominn saman, og það átti að byrja einhver mynd.
Sætin voru takmörkuð og ég sá eitt sæti laust hjá nánustu vinum mínum og sá aðra sem ætluðu að snatcha því af mér. En ég flaug einfaldlega bara þangað yfir allan troðningin geðveikt svalur og lennti beint í sætinu og leið geðveikt vel við sjálfan mig þegar ég komst í sætið, og allir voru bara eitthvað, vóóóó.


Svo byrjaði myndin og eigandinn sem átti staðinn var að kvarta yfir því hvað bekkurinn minn erum miklir skemmdavargar og talaði um tjónin og svona en sagðist að hann gæti coverað þetta upp en ef svona skildi gerast aftur fengi ekki þessi skóli að koma hingað aftur.


Svo eftir smá stund þá sogumst við og allt fólkið inní myndina og lendum þar sem myndin var, en hópurinn tvístrast allur upp.

Ég og tveir bestu vinir mínir lentum á sama stað og reyndum að komast að því hvernig við gætum komist úr þessum ósköpum.

Eftir smá stund kemur einhversskonar risastór kakkalakka mannvera og reynir að fanga okkur. Þetta var svolítill bardagi lengi, ekkert svo sérstakur til að segja frá, en á endanum nær hann tvo bestu vini mína og ég næ að flýja undan honum og fór inná eitthvað svæði sem kakkalakkinn vildi alls ekki fara á og sagði að nú væri útum mig á þessu svæði. Kakkalakkinn hljóp í burtu með tvo bestu vini mína og sá ég hann ekki og var ég einn þá þessum skrítna stað.

Þessi staður leit út fyrir að vera vingjarnlegur, það voru sveppir og blóm en ekki ein einasta lifandi vera og ég heyrði heldur ekkert hljóð sem gerði mig soldið hræddan, ég veit ekkert hvað beið mín.

(ATH! ég gat ekkert flogið þegar ég lennti þarna á staðinn með tveim bestu vinum mínum og gat ekki enn á þessum stað)


Ég labbaði þarna í svolítinn tíma og fylltist soldið af hræðslu, þar til ég sé svona hálgerðan gormasvepp sem reyndi alltaf að stökkva á hausinn á mér. Ég náttlega leyfði það ekki og hljóp langa brekku niður þar til ég kom að einhverju húsi sem ég hafði sterklega tilfinningu að væri undakomuleið mín. Það voru dyr á húsinu, og í hvert sinn sem ég opnaði dyr voru alltaf aðrar fyrir aftan, ENDALAUST af dyrum. Á meðan var þessi gormur að reyna að ná mér og meðan ég var að opna allar þessar dyr varð ég að komast hjá því að hann lennti á hausinn á mér.

Ég var örugglega kominn í gegnum sirka 30 dyr og endaði með því að ég sá enga lausn og þessu, þreyttur og úrvinda og einhvernveginn gaf ég vilja míns til gormsins og hann lennti beint á mér.

Ég fann að ég var að breytast í alveg eins kvikindi og hann, og barðist ég á móti því að þessi umskipti áttu sér stað, á nákvæmlega þessum tímapunkti fattaði ég að mig var að dreyma. Svo ég nota trix sem ég nota alltaf til þess að vakna úr draumum og vaknaði.

Ég var svona hálfgerðlega paralyzed í rúminu, og fannst þessi draumur svo spes að ég vildi ekki að hann myndi enda. Svo ég lokaði augunum aftur (Og alltaf þegar ég geri þetta næ ég alltaf að komast á þeim stað í draumnum sem ég var, alltaf!)

Ég var kominn aftur á sama stað í draumnum og fann fyrir því að ég gat tekið þetta drasl sem var að ummynda mig af mér og það einhvernveginn reyndi að breyta mér en gat það ekki. Svo ég náði að henda draslinu af mér og sveppurinn sem infectaði mig sagði geðveikt hátt þegar mig tókst þetta. “NEI!…….NEI!, það ert ÞÚ!”

Og hann sprakk í tætlur eftir það.
Allar dyrnar sem ég opnaði þarna fyrr í draumnum voru lokaðar, og ég opnaði einungis fyrstu dyrnar og það var rosa skært bjart ljós framundan, ég labbaði að því og sá síðan þennan heim sem ég var staddur í heild sinni og hann gjörsamlega eyðilaggðist og endaði með því að ég og allt fólkið í skólanum voru stödd þarna í sýningarsalnum aftur öll hólpin.

Enginn vissi það að ég hafði reddað þessum málum, en fannst mér ekki skipta máli að þau vissu að það væri ég.


Svo allt í einu fórum við öll saman á flugvöll.
(Ég og 3 árgángurinn erum að fara til Tyrklands í sumar og vorum við þarna núna stödd á flugvöllinn og á leiðinni þangað)


Ég man að þetta var rosa mikið Chaos þarna og enginn vissi hvert hann ætti að fara vegna þess að 4 og 2 bekkur voru líka þarna og voru á leið til Japans.


Allt fór í einhversskonar rugling ég man ekki almennilega eftir því, vélinni til Tyrklands var cancelað.

Þannig einhver farastjóri tók uppá því að allir færu til Japans.

Ég gjörsamlega týndi öllum farangrum mínum í þessum ruglingi en endaði með því að ég rétt náði að komast inní Japan vélina sem ég og allir mínir félagar voru.

Svo eftir smá stund þegar vélin tekur á loft hrapar hún og sé ég fremst á vélinni að allt er í eldi. “Flugstjórinn var dáinn” Ég einhvernveginn fór í gegnum eldinn, fann samt fyrir sársaukan en svo með því að einbeita mér náði ég að slökkva á öllu saman og redda öllu fólkinu úr vélinni.

Við vorum öll stödd á flugvöllinn aftur og vissum ekkert hvað við ættum að gera.

Draumurinn endar síðan á því að ég og stelpa sem er þarna sem ég er geðveikt hrifin af í alvörunni sýnir mér einhverjar dyr á einhverju sérstöku herbergi og ég og hún löbbum saman inní það og gerist það sama aftur og í sveppalandinu og ég labba í gegnum þetta skæra ljós og heyri ég svaka mikinn hávaða og vakna við það og finn að hjartað mitt slær rosa hratt vegna þess mig brá svo mikið.


Eftir það bara vaknaði ég og er núna nýkominn úr sturtu og langaði að deila þessu með ykkur og langar að vita hvort einhver geti túlkað þennan áhugvaverða draum ;)


(ATH! draumurinn var í sjálfu sér miklu lengri en það var svo mikið í honum sem ég nenni ekki að segja vegna þess að mér finnst það ekki skipta svo miklu máli)