Tvær spurningar fyrir þær persónur sem hafa vit á:

1. Tvisvar hef ég séð sjálfan mig deyja, á meðan ég var vakandi og að gera nákvæmlega samhlutinn og ég dó útaf. Fyrra skiptið var ég að keyra utanlands með 2 vinum mínum og er að beygja, í einhvern tíma sem er mér óvitaður þá sé ég bílinn fara útaf fara nokkrar veltur og vinir mínir dauðir í kringum mig….blóð útum allt og svo svart….sekúndubroti seinna þá er ég að taka sömu beygjuna aftur og ekkert kemur fyrir. Var í sjokki margar vikur eftir þetta.

Mánuði seinna var ég í flugvél með frænda mínum sem að er flugstjóri, í lítilli tveggja sæta rellu. Við fljúgum inn í ský og ég sé okkur hrapa beint niður í sjóinn, sekúndubroti seinna erum við að koma útúr skýinu. Ég skil og skil ekki afhverju þetta gerðist.

2. Allar martraðir sem ég fæ enda eftir að ég er drepinn, ég hef aldrei vaknað þegar eitthvað kemur fyrir sem orsakar dauða áður en ég dey. Ég þarf alltaf að sjá mig rifinn í tætlur, étinn eða hrapa til dauða míns.

Please, getur einhver sagt mér afhverju þetta kemur fyrir mig?