Ég og sonur minn höfum verið að ræða dularspeki og yfirnáttúrulega hæfileika fólks. Við erum bæði mjög næm og tökum inná okkur tilfinningar annara. Ég hef náð að þjálfa mig uppí að lina þjáningar fólks sálarlega ef einhvað er að eins og sorg og annað en gallinn við þetta er að ég tek þetta allt inná mig og er í marga daga að hlaða mig aftur eftir svona sem er ekki gott. Ég var að benda syni mínum á mátt handanna hvað er hægt að skynja með þeim. (Ef þú heldur höndonum á þér fyrir framan þig með ca. 5 cm á milli þá finnur þú eins og rafstraum á milli þeirra) Við prófuðum að halda höndunum á okkur fyrir framan hvort annað og ég skynjaði rosalega orku frá honum ég gat sagt til um hvaða hluta á hendinni hann hugsaði um og eins og að ég næði að einhverju leiti að skynja hans hugsanir og líðan þá stundina. Annars er fólk mjög misjafnlega móttækilegt fyrir svona og mjög mismunandi opið en ég hef aldrei áður skynjað svona mikla orku frá neinum. Ok það er kannski ekki mikill tilgangur með þessari grein en ég varð samt að segja einhverjum frá þessu þar sem ég held að sonur minn sé upprennandi miðill eða einhvað álíka ef hann fær rétta þjálfun.