Mig er alltaf að dreyma svo undarlega. Hefur reyndar alltaf gert það, en núna síðustu mánuði hefur mig verið að dreyma sama atvikið, aftur og aftur bara í mismunandi draumum. Það er þannig að ég þarf að fara á klósettið(að kúka)en stundum finn ég ekki klósett, eða þá að ef það er klósett þá er það ógeðslega sóðalegt eða þá að það er ekki hægt að læsa því og það veður alltaf einhver inná mig! Fáránlegt, en mig dreymir þetta aftur og aftur. Er einhver sem hefur hugmynd um hvað þetta getur táknað?