Ég á það til að dreyma ruglaða drauma, en ef ég hef lagt mig fram við að ráða þá, finna einhverja merkingu í lífinu sem tengist draumnum þá hefur undantekningarlaust um 90% af því ræst á einn eða annan hátt!

Fyrir fjórum árum var ég í erfiðri aðstöðu og vissi ekkert hvað ég átti að gera, en dreymdi svo að ég hefði útskýrt allt fyrir vinkonu minni, í draumnum sem varð að hálfgerðri martröð dróst hún svo inn í vandamálið.. Þá áttaði ég mig á að það þýddi ekkert að hlaupa í burtu eða hundsa vandamálið. Ég fór og hjálpaði vinkonu minni sem fór og náði í hjálp og þar með reddaðist málið..

Ég áhvað að tala um þetta við þessa vinkonu mína, það kom í ljós að hún var í mjög svipaðri aðstöðu, bara ekki nálægt því eins slæmri en ef ég hefði ekki talað við hana þá þá hefði hún getað lent eins illa útúr hlutunum og ég.. Við stóðum svo saman í þessu og málin redduðust að vissu leiti til eins og í draumnum.. Ótrúlegt? Þarna var undirmeðvitundin að segja manni til! En allavega hefði ég hunsað drauminn þá værum við líklega ekki vel staddar í dag, þ.e. ef ég hefði aldrei gert neitt í líkingu við það sem draumurinn sagði mér, þá hefði ég líklega endað með sjálfsmorði þar sem engin leið virtist fær þá..

Núna er það spurningin hvort það sé eitthvað ráðanlegt úr draumi síðustu nætur, eða í raun morguns, rugl á svefntímanum hjá mér..

Það fyrsta sem ég man var í dýrabúð, einhver stelpa með mér, ég er ekki viss hver það var, þetta var dýrabúðin við kringluna, en hún leit samt allt öðruvísi út, eins og gerist og gengur í draumum.. Ég var einhverra hluta vegna með kanínu sem ég keypti þar fyrir um 6 árum í fanginu, skrítið þar sem ég gaf þá kanínu frá mér fyrir 3 árum, og hún er einhverstaðar laus við eitthvað bóndabýli í dag, en samt vorum við eitthvað að tala um kanínuna, þær kanínur sem voru þarna þegar hún var keypt, sorgleg umræða en maður ræður ekki draumunum sínum.. Skyndilega brást gólfið undir mér, en einhvernvegin komst ég upp aftur, þá var kanínan horfin en ég virtist ekki taka eftir því..

Það voru svo einhverjir náungar, í búðinni, að gefa miða í eitthvað tónleika/partí dæmi, nema það var skilda að mæta á sundfötum þarna.. Við tókum okkur til og mættum, þegar inn var komið þá var allt á floti þar, okey sundpartý greinilega sem hefði verið ágætt ef vatnið hefði verið aðeins grynnra, þar sem ég er sjúklega vatnshrædd og þar að auki ekkert allt of há í loftinu.. Þegar það var búið að redda áfenginu hafði ég vitanlega engan áhuga á að drekka því ég hafði áhyggjur af því að drukkna, mætti svo einhverjum gaur sem ég þekkti og gat treyst á hann það sem eftir var kvöldsinns, þ.e. þetta var nokkurnvegin eins og típískt partý atriði í einhverjum dramaþætti, ég var bara meira og minna í fanginu á gaurnum.. Ég veit í raun ekki hvernig þetta endaði því ég byrjaði að rumska fljótlega eftir þetta, ég er ekki 100% viss um hver þetta hafi átt að vera en hef mínar grumsemdir..

Annars væri gaman að heyra hvernig þið mynduð ráða svona draum eða heyra frá einhverjum draum sem ykkur hefur dreymt og hefur ræst að einhverju leiti..
What is home again?