Mér langar að deila með ykkur nokkrum lífsreynslum sem ég hef upplifað.

Það var um nótt fyrir tvemur árum síðan, ég var svona hálfsofandi og hálfvakandi, ég lá þannig að ég horfði á vegginn, allt í einu fannst mér að systir mín var að koma inn til mín og lagðist upp í rúm til mín, ég spurði hana hvort hún gæti ekki sofið og snéri mér við í leiðinni, þegar ég snéri mér við var enginn þar, ég veit að þetta var draugur sem var að koma inn til mín og lá uppí rúminu mínu, þetta var rosalega óþægileg tilfining, ég fór að svitna rosalega mikið.

Svo viku síðar að nóttu til var ég einnig svona hálfsofandi og hálfvakandi þá fann ég að það var einhver að renna stólnum sem var inní herberginu mínu að rúminu mínu og sast í stólinn, þessa stundina fékk ég þessa sömu tilfiningu og ég fékk viku áður ég fór að svitna rosalega, ég snéri mér við og ætlaði að tékka hvort einhver væri þarna þá sá ég stólinn við rúmið mitt og enginn í honum.

Svo núna í sumar voru mamma, pabbi og systir mín að fara í sumarbústað í viku þannig ég og kærastinn minn gátum haft húsið sér fyrir okkur, við sváfum í hjónarúmi mömmu og pabba. Þegar maður situr í rúminu þeirra þá horfir maður á ganginn frammi. Það var þannig að ég vaknaði eina nóttina við eitthvað hljóð þá var kærastinn minn sitjandi á rúminu og horfði fram á ganginn, þá hafði hann líka vaknað við eitthvað hljóð og hann sá mann labba þarna frammi. Fyrst hélt hann að þetta var þjófur en síðan var hann alveg viss um að hann hafi séð draug, þá fékk ég þessa tilfiningu og fór að svitna og svitna.
Svo daginn eftir var ég heima með barni sem ég er að passa ég sat í stofunni og barnið var á ganginum og svo kom það hlaupandi til mín með þenna skelka svip, ég spurði hvað væri að og barnið benti á ganginn ég leit á ganginn þá heyrði ég eitthvað þrusk og einhverja hreyfingu, þarna er ég alveg viss um að þessi draugur hafi verið á sveimi.

Takk fyrir að lesa og afsakið stafsetingavillur.