Ég er sorgmæddur þessa dagana vegna þess að ég hef verið að dreyma fyrir slæma atburði.

Mig dreymdi að æskuvinur minn myndi deyja og ég talaði við hann um drauminn og hann reiddist mér fyrir að hafa sagt sér þetta. Hann dó skömmu seinna.

Mig dreymdi að maður sem ég kynntist myndi verða öðrum að bana og hroðalegan hátt, ég varaði hann við og hann trúði mér, samt er eins og það hafi ekkert verið hægt að gera.

Mig dreymdi fyrir bílslys sem eg lendi í rúmum tveinur árum fyrir slysið, dreymdi hann að vísu tvisvar og í seinna skiptið slasast ég einn, draumurinn var alltaf í huga mér en ég skildi ekki meininguna fyrr en ég vaknaði upp á sjúkrahúsinu. Allir sem komu við sögu í draumnum komu við sögu rétt fyrir slysið.

Hvert get ég leytað til að athuga þetta, og helst virkjað þá hæfileika ef einhverja ég er með.

Ég vil ekki útlista frekar um draumana tvo sem snúa ekki að mér því fjölskyldur þeirra gætu lesið þetta og ollið mikilli sorg.

Með fyrirfram þökkum.