ok. mig dreymdi alveg fáranlegsta draumin í nótt. og það sem hræðir mig mest er að ég man venjulega aldrei hvað mig dreymir.

allavega, here goes:
ég er staddur í garðinum hjá ömmu þar sem ég átti heima þegar ég var 0-4 ára og það er nótt. nema hvað þetta er stríðsvöllur og það er fullt af fólki þarna(hermönnum s.s.) bæði bandamönnum og síðan óvinum sem koma að til að ræða uppgjöf og/eða samruna þjóða eða eitthvað slíkt. einhverra hluta vegna þá veit ég að ég er þarna staddur með breska hernum og þetta eru nasistar sem eru að ráðast inn.

allavega þegar þeir eru komnir með kröfur sínar þá tek ég upp sniperinn og skýt á þá, en hitti ekki. engin virðist taka því illa að ég skaut á þá. þar sem ég hitti ekki verð ég frekar pirraður á drasl kíkinum á níðþunga rifflinum mínum og fer að stilla hann hinn rólegasti með miðið á nokkrum af óvinunum.

þegar ég er ánægður með miðið, tek ég minn tíma stíg aðeins til hliðar og miða vel þannig að ég nái fjórum headshotum í einu skoti (action quake áhrifin greinilega) og viti menn það tókst. svo hlæ ég kvikindislega og segi að það sé greinilega hægt að ná fjórum headshotum í einu, og allir bretarnir hlæja með. ég man að það kom meiraðsegja svona uppi í horninu vinstramegin svona “you fragged XXX” eitthvað, 4x (nákvæmlega eins og í counterstrike).

núna brjálast allir í óvinahernum. en ég bregst hinn versti við og segi þeim að ég ætli (get this) ekki að hleypa þekktum nauðgara buxnalausum inn í húsið mitt. s.s. augljós myndlíking á þeirri stöðu sem ég er í. svo segi ég þeim að við getum rætt málin þegar þeir skila póllandi og öllum þeim löndum sem þeir hafa tekið. því næst skýt ég aðra tvo hermenn og út brýst mikill bardagi.

svo man ég ansi vel eftir mörgum graphic atriðum þar sem ég snipe-a einhverja gaura í fjarska og nokkrum atriðum þar sem ég drep gaura með vasahníf þegar skotfærin voru búin(counterstrike-áhrifin). þmt. eitt ansi nasty atriði sem situr enþá soldið ímér þar sem ég sting gaur ansi oft í bringuna og hálsin. bardagin er s.s. í gangi í kringum húsið.

eftir að hafa drepið cirka átta gaura með vasahnífnum virðist ég vera einn eftir lifandi á vígvellinum, eða amk man ég ekkert eftir það.

well, þetta er allt. ef það er einhver draumráðninga spekúlant þarna sem hefur eitthvað um málið að segja þá endileg. ég veit ekkert hvað þetta gæti verið. en þegar ég vaknaði fannst mér þetta bara ansi skemmtilegur draumur þ.e.a.s. sá hluti sem þetta var eins og counterstrike. hinsvegar þessir graphic hnífabardagar voru bara scary. og þetta “máltæki” sem ég fann upp í draumi fer alveg meðmig. “ég ætla ekki að hleypa þekktum nauðgara buxnalausum inn í húsið mitt” guðminngóður whats with that?! hvernig fer maður að því að finna uppá einhverju svona bara með undirmeðvitund? er þetta kanski merki þess að ég ætti að hætta að spila CS?:)
“Humility is not thinking less of yourself,