Einn daginn vaknaði ég upp og leið mjög undarlega, allt svo ruglingslegt í kring um mig, gat ekki einbeitt mér að neinu. Ég er ofvirkur og er vanur slíku en þetta var margfalt meira en það sem ég hafði vanist. Ég er í skóla og mér gekk mjög illa í dágóðan tíma, stundum hugaði ég að sjálfsmorði en vissi ekki af hverju!!! Almennt leið mé mjög vel, ég stunda íþróttir, reyki ekki, drekk í hófi o.s.frv. Ég fór að tjá mig við náið fólk um vandamál mitt og var mér vísað á læknamiðil. Ástæðan fyrir einbeitingatruflunum og öllu því var að það höfðu komist inn á mig 4 andar, ég fékk þá inn á mig dansstöðum sem ég hafði stundað og höfðu þeir dáið úr sjálfsmorði og slysum tengdum áfengisneyslu. Miðillinn sagði mér að neysla áfengis gæti haft áhrif á mig og opnað mig þannig að andar kæmust inn á mig….! Svo minntist hann eitthvað á 3 augað…en ég man ekki hvað það var… Ég vonast til að einhver geti gefið mér upplýsingar um 3 augað og áhrif áfengis hvað það varðar…!!!