Ég skoðaði www.ghostweb.com og kíkti þar á draugamyndir og í alvöru talað stór hluti af þessu eru ekki neinir draugar. Það eru þarna nokkrar myndir sem eru spúkí en afgangur ó nei nei það held ég nú ekki. Ég ákvað að skoða mínar myndir og ég fann nokkrar myndir með einhverjum óljósum hringlaga blettum en aldrei nokkurn tíma hefur mér dottið í hug að þetta væru sálir og meira að segja fyrsta myndin sem ég rakst á hjá mér er af yngstu systkinum mínum að leika sér að stökkva ofan í snjóskafl og það var snjókoma þegar ég tók myndina og viti menn það úir og grúir af sálum á myndinni ……… eða eru það kannski snjókorn úr fókus. Það held ég. Ég held að á meirihluta þessara mynda eru þetta rykagnir í loftinu, uppgufun úr jörðinni , þokuslæðingar og þessháttar en að sjálfsögðu ef þið viljið frekar trúa því að eftir þetta líf munum við bara sveima sem slæðingur í kirkjugarðinum þá eru þetta pottþétt DRAUGAR ÚHÚÚÚÚÚ
——————————