Mig dreymdi draum í nótt sem aldrei þessu vant ég man virkilega eftir og ég var að velta því fyrir mér kæru hugarar hvort að þið gætuð kannski sagt mér hvað hann gæti hugsanlega þýtt..hann var einhvernveginn svona: Ég(sem er stelpa) var með hópi af öðrum stelpum(nokkuð margar eitthvað um 100) að flýja undan strákum.Við vorum öll frekar lítil(lágvaxin) og við vorum ekki að flýja úta því að þeir ætluðu að gera okkur eitthvað..þeir voru svona einhvernveginn að passa okkur. Við stelpurnar reyndum að halda hópinn en stundum hljóp ég eitthvað annað..og málið var að ég gat hlaupið ýkt hratt(eða ekki beint hratt..tók nokkur skref en komst samt svo langt á stuttum tíma) og þegar ég var komin eitthvað ákveðið hratt þá gat ég flogið í smástund(var ekki með vængi) en það virtist mismunandi hvað ég gat flogið hratt og langt og lengi.
Ég man að einhverntíma kallaði ein stelpan á eftir mér(þegar ég var ein að hlaupa burtu með nokkra stráka á hælunum og reyna að ná mér) að þetta þýddi ekkert því að þeir myndi hvort sem er strax ná mér,en ég hljóp ýkt hratt og gat ekki flogið mikið(virtist stundum geta flogið lítið sem ekki neitt þegar þeir voru mjög nálægt en miklu lengra og hærra þegar þeir voru lengra í burtu) svo að þeir náðu mér eiginlega strax..þeir gátu líka flogið svona svo að þeir komu og tóku um mig(ekkert harkalega eða fast)og toguðu mig niður aftur og slepptu mér síðan.
Stundum var eins og ég væri í öðrum draumi en þá vorum við allar stelpurnar að fljúga frá þeim og þá kom stundum einn bróðir minn(á nokkra) og hjálpaði mér að fljúga..
Síðan í endann á drauminum vorum við allar stelpurnar komnar inní stórt herbergi sem hafði gler sem veggi og eina hurð en strákarnir voru hvergi sjáanlegir. Ég fór að skoða mig um og klifaði upp glerið(æ,þetta voru svona eins og margir gluggar.ekki heilt gler,þannig að ég klifraði á spýtum sem voru settar til að festa gluggana í..ef þið skiljið hvað ég meina) og upp að glugga sem var þarna..hann var lokaður svo að ég opnaði hann.
Fyrir utan sá ég götu(í bæ) og þar var soldið af fólki(miklu stærra..semsagt af eðlilegri stærð…held ég allavega..en það getur líka verið að þetta hafi verið risar og við af eðlilegri stærð)og þar var svona bar eða skemmtistaður(sá það á skilti sem stóð á húsinu og líka á röðinni og straumi fólks sem lá þangað) ég fylgdist soldið með fólkinu þarna. Svo kom einhver strákur(svona um 18-1 held ég og mér fannst ég þekkja hann og það var eins og hann þekkti mig líka) til mín(sko utanfrá) og hann var náttúrulega frekar hávaxinn,við fórum að tala saman(ég varð frekar hrifin af honum..sætur strákur og skemmtilegur) og var voða gaman(ég stóð ennþá í glugganum) en síðan faðmaði ég hann bless því að hann var að fara á þennan bar eða skemmtistað og þá fannst mér eins og ég væri jafnstór og hann,en þegar hann fór var ég alveg jafn lítil og fyrr.
Skömmu seinna(svona 5 mínútum seinna) kom hann aftur til mín og sagðist endilega vilja fá mig með sér á barinn/skemmtistaðinn því að hann myndi ekki hafa neitt gaman og vildi ekki fara þangað nema hafa mig með. Ég held að ég hafi örugglega farið með honum,en áður en ég fór spurði ég einhvern sem var þarna inní herberginu með mér hvort ég mætti ekki aðeins skreppa(líkt og ég hafi verið í fangelsi eða eitthvað) og jújú það var alltílagi.

Síðan vaknaði ég við símann..ég reyndi að sofna aftur en þá kom litli bróðir minn og talaði og talaði og talaði og talaði þannig að ég gat ekki sofnað aftur… :(

hvað haldið þið að þetta hafi átt að þýða allt saman??
með fyrirfram þökk,
rammrocks
Vissir þú að tungan í steypireyð er jafnþung og fíll?