Það er nú þannig að ég hef alltaf verið “inn” í svona spúkí málum. Móðir mín blessunin seigir að þegar ég var lítil hafi ég oft verið að leika við ósýnilega og (að öllum líkindum) ýmindaða krakka. Móðir mín er MJÖG jarðbundin og gat alltaf fundið skýringu á nokkrum ótrúlegum hlutum sem fylgdu þessum vinum mínum. Td. hvernig ég gat rennt upp kjólum að aftan, 2ja-3ja ára gömul! Alein! En henni brá heldur í brún þegar ég sagði nafnið á einum vini mínum. Þá fór mamma að spyrja mig meira út í þennan vin. Hún fékk sjokk. ÉG var 4ra ára þegar það var og ég man eftir þ´vi! éG sat inni í eldhúsi og vinur minn líka. Mamma kemur inn og bróir hennar með henni. Þau setjast með mér þar sem ég sit og teikna og þeu fara að spyrja mig út í þennan vin. Það kemur á daginn að hvert einasta smáatriði passaði við frænda minn (son þessa bróður mömmu) sem dó 5 ára daginn sem ég fæddist! Rosa spúkí eitthvað. Síðan hef ég fundið fyrir þessum vini mínum en aldrei séð hann.
Það er einnig að eftir að vinkona mín dó, þá hefur eitthvað verið að ske. Þessi stelpa var voðalega lífleg og elskaði að hrekkja alla. Ég safna allskyns hlutum og þ.á.m á ég um 20 stykki þjóðbúningadúkkur. Eins og allir vita eru dúkkur líkar okkur í útliti. Ég hef ófáum sinnum gengið inn í herbergið mitt og þá standa þær allar á haus, sem á bara ekki að geta skeð. Græjurnar mínar hafa sjálfstæðan vilja svo og ljósin í herberginu (það kviknar stndum þegar ég er búin að slökkva og búin að koma mér vel fyrir í rúminu). Vinkona mín þorir ekki að vera ein inní herberginu mínu eftir að ég fann einhvern setja hendina á öxlina á mér eitt sinn er mér leið mjög illa (ég var EIN inni í herberginu mínu) Nú..ég og vinkona mín settum á svið örlitla tilraun sem þið getið auðveldlega gert. Við settumst niður og hún tók fyrst tvær sígarettur af sitthvorri tegundinni huldi þær og bað mig um að seigja sér hvor væri hvað. Ég fann einhverja skrýtna tilfinningu inn í mér einhverneigin og ég gat alltaf rétt, við prufuðum líka með spilum og allskyns hlutum og alltaf gat ég rét!
Svo mín spurning er sú: Getur verið að ég sé með einhvern vott að skyggnleika (?) í mér eða er þetta bara MJÖG mikil tilviljun??
Plís svarið, mig langar að vita það!
There is no RL-there is only AFK.