alltaf þegar ég var lítil gat ég flogið í draumi. þegar ég var orðin svona um 15 ára hætti það gjörsamlega og ég var mjög fúl því að fljúga er það æðislegasta sem ég veit um. Nú er ég orðin 17 og þetta er byrjað aftur(mér til mikillar ánægju).
Þegar ég segi fólki frá einhverjum draumi sem mér hefur dreymt, t.d. ég var að labba úti og sá broddgölt, flaug yfir hann, og þá segja mjög mjög margir … FLAUGSTU??? geturðu flogið í draumi??
nú langar mig að vita hvort að þú lesandi góður getur flogið í draumi eða ekki ?? og hvort einhver viti hvaða þýðingu það hefur !!