Sækið ekki fundi íllra anda! Mig langaði bara að vekja athygli ykkar á því (allavega þeirra sem trúið á biblíuna) að samkvæmt biblíunni á ekki að sækja miðilsfundi eða eins og biblían orðar það þá á ekki að reyna að ná sambandi við látið fólk.
Biblían kannast vissulega við miðilsfundi eins og við þekkjum þá en segir þetta eingöngu vera blekkingu þar sem íllur andi dulbýr sig og kemur fram sem ýmsir einstæklingar, þessi ílli andi byrjar á því að koma með réttar staðreyndir en getur svo farið að ráðleggja þér ýmsa vitleisu..
Hvað mynduð þið gera ef þið vilduð einhverjum illt en gætuð aldrei sannfært hann? Gott ráð væri að dulbúa sig, þykjast vera einhver annar, sanna það með ýmsum staðreyndum og segja honum svo til íllra hluta!

Sumir hugsa eflaust núna, hvað um það, þá fær maður allavega að vita hvað þessi ílli andi hefur að segja.. en munið líka að í biblíunni kemur fram að ef þú sækir fund ílls anda þá getur íllur andi sótt þinn fund (semsagt komið heim til þín þegar honum sínist). Að vísu er hægt að túlka biblíuna á allavega tvær vegu eins og annað :)