Frægir draugar Ég fór til tannlæknis um daginn og þurfti auðvitað að bíða eftir að komast að. Ég fór að skoða Hello blað og rakst á grein um breska kerlingu sem er miðill en hún er ekkert venjulegur miðill´, nei hún er miðillinn sem fólk fer til til að hitta frægt fólk. Hún segir að frægt fólk(dáið nátturulega) koma til hennar til að ræða við aðdáendur sína. Í blaðinu var sýndar myndir af miðilsfundi og var þar fólk sem vildi tala við Freddie Mercury og auðvitað kom hann og ræddi við þau, gegnum kerlinguna auðvitað. Hún sagði líka að ótrulega mikið af frægu fólki hefur komið til hennar þar má nefna, Elvis, Dean Martin, Richard Nixon?, Rock Hudson og fleiri og fleiri. Mér fannst þetta alveg frábært og langar mikið að skreppa til hennar og spyrja Freddie eða Nixon eitthvað skemtilegt.

kveðja sbs
www.sbs.is