Mig vantar smá hjálp/álit/ráð/og leiðsögn.. málið er það að ég hef alltaf verið næm frá því ég man eftir mér..
ég hef 2sinnum séð látna manneskju sem hræddi mig þvílíkt,og alltaf að finna margt á mér… ég ætla að segja sögu mína hérna í grófum dráttum það sem er mér eftirminnilegast….

Fyrsta skipti var þegar ég var 5ára útá spáni með mömmu og pabba þá sá ég mann sem var kærasti hennar mömmu þegar hun var 18.ára en hann druknaði þegar bátur sem hann vann á sökk..en þarna sat hann á stól og “bara horfði á okkur sofa” það fannst mér skrýtið….

þegar ég var um 10ára þá bjó ég í grafarvogi og alltaf áðuren pabbi kom heim úr vinnuni sonna umþb 10-15mín áður ef ég stóð inní eldhúsi þá kom alltaf svakalegur ljósglampi á eldhúsgluggann svona einsog bíll væri að keyra fyrir hornið og lýsti á gluggann… það brást aldrei það liðu aldrei meira en umþb 20mín þá var hann kominn heim:)

við um 14ára aldur þá var mamma í baði og ég sat inná baði hjá henni og við vorum að tala eithvað saman,alltí einu heyrum við í jeppanum hanns pabba og þegar hann keyrði inná mölina í bílastæðinu, síðan kom lykklahljóðið þegar það var opnað og lokað útidyrahurðini, síðan kom hljóðið í skónum hanns þegar hann labbaði á flísunum í ganginum.. og þar á eftir kom kling í beltinu á jakkanum hanns, síðan heyrði ég þegar hann opnaði og reif upp “gluggapóstinn” ég og mamma þögnuðum báðar og heyrðum þetta allt saman báðar, ég fraus og mamma kallaði á pabba en enginn pabbi var þarna, hann kom 15mín seinna….

þegar jarðskjálftinn kom að kvöldi 21júní eftirskjálfti frá 17.jún þá lá ég uppí rúmmi og var að fara að sofa, allt í einu á sekúndubroti byrja ég að hugsa um og sá fyrir mér herjólfdal í eyjum og að grjót væru að falla niður úr dalnum og fólk að flýja úr dalnum og jörðin skalf…. síðan hristi ég hausinn og fer að hugsa eithvað annað það líða kanski svona 5mín þá kemur þessi líka jarðskjálfti.. úff hvað ég varð hrædd

í sept/október sl. var ég á leiðinni til reykjavíkur frá patró þá alltí einu sé ég bláann eldgamlann og riðgaðann bíl fyrir framan okkur, ég spyr strákanna hvort þeir hafi séð hann en mér er svarað neitandi.. síðann lít ég undann og lít aftur á götuna og bingo hann er horfinn!

í byrjun ársins, sennilega í janúar sísðastliðinn þá var ég nýbyrjuð með strák sem bjó í gamalli blokk, og þar var frekar reimt ég fann það en sá aldrei… en eitt kvöldið þegar við vorum að fara að sofa þá sé ég í myrkrinu mann standa og eg náði ekki að greina hvert hann horfði, ég sá hann bara í svarthvítu því það var soldið myrkur inní hrberginu en sá hann samt greinilega.. ég fríkaði út, lagðist og grúfði mig hjá kærastanum lokaði augunum og þorði ekki að opna þau….

stuttu seinna og næstu daga eftir þetta hefur þetta verið farið að eflast svona líka að ég fann hvernig ég var elt en sá samt aldrei…og ég ætlaði ekki að þora að vera ein heima né fara ALEIN í lyftuna, ég segi að þvílíkri innlifun að ég vilji þetta ekki, bið um að hvað sem þetta sé að þetta sé tekið frá mér, ég vilji ekki þennan hæfileika eða hvað sem fólk við kalla þetta… og viti menn að ég fann ekki fyrir einu einasta óþægilegu eftir þetta….
stundum reini ég þegar mér líður illa, þá reini ég að biðja föður kærasta míns um hjálp eða gamla kærastann hennar mömmu og stundum þá fer alveg ÞVÍLIK gæsahúð um mig alla, alveg þvílíkur hrollur
nokkrum sekúndum eftir að ég er búin að tala við þá…samt er mér mjög hlýtt og hlýtt inní íbúðinni…

Ég fór til þórunnar maggý miðils í gær, og þar talaði “langa langa amma mín um að ég væri næm,þessvegna kæmi svona mikið fólk á fundinn til mín og að ég væri vel vernduð.. einnig kom afi minn og sagði ”stundum þegar þú ert ein þá finnuru að þú ert ekki ein“ síðan talaði þóra maggý um að það væri svo ofboðslega mikill gulgrænn litur í kringum mig og soldið mikið af fjólubláumm líka, hún tengdi þessi liti eithvað við það að ég væri næm… síðan eftir að hún var búin að loka iná hinn heiminn þá talaði ég við hana og þessa næmni mínaog hún skildi mig uppá hár… einsog hún hafi vitað að ég myndi segja þetta eða fannst þetta ekkert skrítið.. mer leið einsog hún skynjaði hvernig ég er… og hún fór að segja mér frá sinni reinslu hvernig var að vera svona á meðan hún var að ala upp sín börn og betra væri að vera svona eftir að börnin væru vaxin úr grasi, t.d lét hún loka á sig 2sinnum fyrst þegar hún var táningur og svo aftur seinna en þetta leitaði alltaf aftur á hana á endanum…

ég hugsaði mikið um þetta allt saman í gær, og í nótt dreymdi mig sérkennilegann draum. mig dreymdi að ég hefði séð mann og sagt honum að fara en hann fór ekki sama hvað ég öskraði og sagði honum að hunskast, þá bar ég hendurnar fyrir mig og beindi lófunum að honum sonna einsog ég væri að látann hverfa(þíð hafið séð charmed þættina þar sem systurnar frysta hlutina eða eithvað álíka með höndunum..þannig reindi ég að látann hverfa..)hann fór samt ekki, ”ég sagði núna sé ég ég vil þetta ekki ég vil ekki vera svona“..síðan man ég ekki meira… ég held að þetta hafi verið sami maður í draumnum og ég sá í janúar sl.

einsog ég segi þá hef ég nánast alltaf verið næm að einhverju leiti…. þetta sem ég sagði hér fyrir ofan eru svona stæðstu hlutirnir eða það sem hefur verið eftirminnilegast… oft hefur mig samt dreymt um að fólk hringi í mig sem ég hef ekki talað við í marga mánuði og yfirleitt hringir manneskjan í mig daginn eftir.. eða segir eithvað í draumi í símann sem hún segir svo líka í símann daginn eftir… allir kannast nú við það að hugsa sterkt til einhvers og sú manneskja hringir innanvið hálftíma seinna eða sendir sms það kannast ég líka við:) ….. svo var það oft sem ég horfi eithvað t.d.beint áfram og þá sé ég að það er eithvað á hreyfingu til hliðar við mig og ég lít til hliðar en það er ekki neitt


Mig langar að spyrja ykkur:
1.)Hversu næm mynduð þið kalla þetta? mjög mikið, mikið, smá, meðal eða hvað?
2.)afhverju fer þessi hrollur um mig? ætli að þetta hafi verið svar einsog það væri verið að svara mér”ég hlustaði ég skal reina að hjálpa“ eða eithvað álíka?
3.)mig langar að efla þetta er samt smeyk, aðalega við það að líta til hliðar og sjá einhvern sem ég þekki ekki baun í bala…
eða að ég verði ”ofsótt“ þ.e.a.s fái ekki svefnfrið eða það verði stöðugt einhverjir að leita til mín hinumegin frá.. þekki eina sem fékk ekki svefnfrið á nóttuni endaði með að mamma hennar lét ”loka" á hana
4.)hvað ætli þessi creapy draumur merki?


en svona til gamans má geta að þessi langa langa amma mín sem fylgir mér hún var skyggn, mamma er svakalega berdreymin.. ég er svona og svo talaði langa langa amma mín heitin á miðilsfundinum að barnið sem ég ber undir belti núna og á að koma í heiminn í október, að sá einstaklingur yrði svona líka! þetta er semsagt í erfðargenunum hehe….
ég vona að þið getið eithvað hjálpað mér eða veitt mér ráð/leiðsögn..


þið sem viljið tjá ykkur um að ég sé geðveik, sleppiði því þá hafiði þið bara það álit að ég sé geðveik, því þeir sem eru næmir þeir vita uppá HÁR hvað ég er að meina… og þið sem skiljið mig, mig vantar leiðsögn og ráð :o)