Draugar Í þessari grein ætla ég að segja sannar sögur um tilvist drauga.

Fyrsta draugasagan sem ég ætla að segja hljómar svona:

Maður(sem ég þekki mjög vel) var að úti að aka þegar hann leit í afturspegilin, og sá hjúkrunarkonu sitja í aftursætinu.

Þessi hjúkrunakona hefur birst í mörgum bílum á þessari leið, hún hafði dáið fyrir nokkrum árum þegar hún ók þennan veg og var á leið til kærasta síns.

Ég sjálf er mikið að tala við drauga og þykir það bara nokkuð gaman, bara eins og að eiga vin, vendarengil, og mér þykir mjög þægilegt að vita af húsdraugnum mínum eins og ég kalla þá. Það er reyndar bara einn í húsinu mínu, alla vegana sem ég hef verið vör við.

Besta vinkona mín er líka mikið með mér í þessu, einn daginn vildum við fá sönnun fyrir tilvist húsdrauga og töluðum við húsdraginn ''minn,, og báðum hann um að gera eitthvað til þess að sanna nærveru sína, hann gerði marga hluti sem voru ekkert mjög skýrir en við gáfum honum sjens.

Fyrsta sönnun hans gerði hann þegar við vinkona mín vorum í Mikado og við báðum hann um að sanna nærveru sína, og þá hreyfðust allir Mikado pinnarnir, þá fórum við að tala ennþá meira við hann, vinkona mín fór á klósettið, og við vorum búnar að útbúa okkur heitt kakó, ég fór inn í herbergi á meðan og þegar hún kom fram og bragðaði á kakóinu sínu, var búið að bæta í það…þá fórum við inn í stofu að horfa á sjónvarpið, og báðum hann um að setjast við hliðina á okkur, hann gerði það.

Eftir smá sjónvarpsstund ákváðum við að fara heim til vinkonu minnar og báðum hann um að koma með okkur, svo þegar það leið á kvöldið fór ég heim með hann með mér og ég bað hann um að leiða mig, og kuldi fór um mína hægri hönd, ég stansaði við poll, og bað hann um að sanna nærveru sína og tilvist fyrir fullt og allt og bað hann um að stíga í pollinn, og hann gerði það með miklu skvampi.

Eftir það hef ég trúað á tilvist drauga af fullu hjarta.

If you dont belive me, its your proplem.