Nú hafa flestir Íslendingar áhuga á draugum og forynjum. En hefur einhver áhuga á hugsanaflutningi (telepathy)? Telur einhver sig hafa orðið fyrir reynslu af hugsanaflutningi?
<P>
Ég? Jú ég tel mig hafa orðið fyrir fyrirbærinu. Ég hef þó ekki haldgóðar sannanir. En hvað segir fólkið? Er fólkið bara í spíritismanum eða hefur fólk einnig áhuga á esp? Endilega látið mig vita. Ef fólk veit ekki upp né niður um hvað ég er að tala um þá væri sniðugt ef það læsi bækur eftir Harold Sherman eða færi bara á einhverja heimasíðuna um þessi efni. Síðan er líka hægt að fá slatta af bókum um þetta (ESP, telepathy) á Amazon. Ég fer líka bráðum að koma inn efni um þetta á heimasíðuna mína.