Við höfum öll heyrt um fólk sem segist sjá og/eða skynja meira en annað fólk og jarðbundnir segja þetta
bara vera rugl og þvertaka fyrir að svoleiðis sé til!!!
Ég átti einn svoleiðis vin, svona var hann þangað til hann kynntist ömmu minni sem nú er látin. Hann
heyrði hana og vinkonu hennar tala um að sú sem dæji fyrst mundi láta hina vita með einhverju merki að/ef það væri líf fyrir handan. Öll fjölskyldan var viðstödd þegar allt í einu kom dynkur á einn vegginn á húsinu og mynd féll niður á gólfið. Amma sagði eiginmanni sínum sallaróleg (enda vön ýmsu dulrænu) að skrifa niður stundina sem þetta gerðist og hann gerði það, en var viss um að það væri önnur skýring. Þá kíktu allir út og bjugust við að sjá klesstan bíl á veggnum eða einhverja “vísindalega” skýringu á þessu. En ekkert hafði gerst bara skyndilegur skellur. Þegar amma skoðaði síðan dánarfregnirnar sá hún að vinkona hennar var dáin og leit á miðann og sá að dánarstundin var sú sama!!

Og aftur að vini mínum, eftir þetta fór hann að trúa og lesa um ýmisleg óútskýrð fyrirbrigði og hann vissi að hann hafði hæfileika en hafði alltaf reynt að frðast þá og nú byrjaði hann að þroska hæfileikann sem hann hafði haldið aftur af svo lengi!!!
….Seize the moment cause, tomorrow you might be dead….