Mig dreymir oft að ég sé útvalinnaf Guði til að bjarga heiminum undan einhverjum vondum öflum. Ég er alltaf hrædd í draumunum, en stundum fyllist ég af þvílíku stolti og hugrekki, að mér tekst að sigra þessa djöfla.
Auk þess hefur mig dreymt að undanförnu Heimsendi… annaðhvort veit ég að það sé að koma heimsendir, en stundum kemur bara alltí einu jarðskjálfti, eða eldgos, og ég er alltaf að reyna að flýja, en fjölskyldan mín vill alltaf taka allt með sér, svo við komumst aldrei í burtu!
Þýða þessir draumar eitthvað, kann einhver draumaráðningar.
Því ég held að ég sé ekki einhver útvalinn manneskja, sem eigi að bjarga heiminum, svo þetta er ekki berdreymi…

Með von um hjálp,
Survivor.