Jæja eftir að ég las greinina um þetta hérna á síðunni fór ég að pæla dálítið í þessu og fór að lesa mig meira til um þetta og byrjaði að reyna þetta. Alltílagi svona til að byrja með gekk þetta ekki ég bara steinsofnaði(sem var nokkuð gott því mætingin í skólanum hækkaði skyndilega)og ég las og las og las á netinu og fór svo að prufa að vakna aðeins fyrr, fá að borða og reyna svo aftur, þá fór ég að finna svona tilfinningu eins og fosshljóð og örlítinn titring en ekkert gerðist. Svo einn daginn kom ég heim um hábjartan dag og var mjög þreyttur þannig að ég fer og legg mig og viti menn ég fer að víbra og heyra suð og alltíeinu opna ég augun og finn að ég er ekki vakandi!!! og þegar ég hugsaði það vaknaði ég frekar fúll því mig langaði virkilega að prufa þetta. Svo tókst þetta aftur en þá var ég ekki staddur heima hjá mér heldur var ég á videoleigu þegar ég tekst alltíeinu á loft og kastast á vegg hinum megin í húsinu….þá vaknaði ég. Svo lenti ég í svolittlu undarlegu í fyrradag því þegar ég var að svífa úr líkamanum sá ég að það stóð maður við hliðina á rúminu ég sá ekki framan í hann því þetta var bara skuggi, meir brá doldið en ákvað að reyna láta mig svífa aðeins meira þegar maðurinn fer að teygja sig í áttina að mér og ýtir mér aftur í líkaman, þá vaknaði ég alveg frekar ruglaður og áttavilltur. eftir þetta hef ég náð að kastast úr líkamanum en kemst ekki útur herberginu sem er frekar böggandi.

væri gaman að heyra ykkar álit (sérstaklega á manninum sem stóð hjá mér eða þetta með videoleiguna)
og þeir sem hafa engan áhuga og vita ekkert um þetta, ekki commenta